Stóra bókin um sjálfsvorkunn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 3.690 kr. | |||
Mjúk spjöld | 2021 | 284 | 4.690 kr. |
Stóra bókin um sjálfsvorkunn
1.990 kr. – 4.690 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 3.690 kr. | |||
Mjúk spjöld | 2021 | 284 | 4.690 kr. |
Um bókina
Eftir sambandsslit hrökklast Hallgrímur heim úr leiklistarnámi í erlendri stórborg til að fara á geðdeild. Heimurinn hefur snúist á hvolf og draugar elta hann hvert fótmál. Stóra bókin um sjálfsvorkunn fjallar í senn um par að stíga sín fyrstu skref í heimi fullorðinna, gömul fjölskylduleyndarmál og ungan mann sem bisar við að koma lífi sínu á réttan kjöl. Ingólfur Eiríksson vakti mikla athygli með bók sinni Klón – Eftirmyndasaga sem út kom fyrr á þessu ári. Áður hafði hann sent frá sér ljóðabókina Línulega dagskrá. Þetta er fyrsta skáldsaga hans.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 4 klukkustundir og 42 mínútur að lengd. Matthías Tryggvi Haraldsson les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
4 umsagnir um Stóra bókin um sjálfsvorkunn
embla –
„Hann stekkur þarna fram með fyrstu skáldsögu sína og má vera montinn af sjálfum sér.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
embla –
„Ljóðræn og vel skrifuð frumraun frá höfundi sem er mikils að vænta af.“
Þorvaldur S. Helgason / Fréttablaðið
embla –
„Ingólfur fer létt með að koma vel uppbyggðri sögu frá sér, með aðalpersónu sem auðvelt er að þykja vænt um og trúverðugum samtölum.“
Sæunn Gísladóttir / Lestrarklefinn
embla –
„Stóra bókin um sjálfsvorkunn er vel unnin fyrsta skáldsaga sem sýnir fram á eftirtektaverðan stíl og óbeislaða hæfileika höfundar.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið