Steingrímur Hermannsson ævisaga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 1998 | 1.025 kr. |
Steingrímur Hermannsson ævisaga
1.025 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 1998 | 1.025 kr. |
Um bókina
Steingrímur er einn þekktasti stjórnmálamaður síðustu áratuga á Íslandi. Í þessari umbúðalausu ævisögu sýnir hann á sér hliðar sem almenningi hafa verið huldar og segir meðal annars frá sviptingum í einkalífi sínu, stormasömu hjónabandi, skilnaði og hatrammri forræðisdeilu.
Steingrímur greinir af einlægni frá samskiptum sínum við föður sinn, Hermann Jónsson forsætisráðherra , og veitir athyglisverða innsýn í baksvið íslenskra stjórnmála. Hann rekur ævintýralegan feril sinn sem athafnamanns og segir óhikað skoðanir sínar á mönnum og málefnum.
Höfundur bókarinnar, Dagur B. Eggertsson, studdist við mikið safn heimilda sem ekki hefur verið vitnað til áður. Steingrímur veitti honum óheftan aðgang að dagbókum sínum og einkabréfum, persónulegum minnisblöðum og öðrum gögnum. Þá byggir Dagur á ítarlegum samtölum við Steingrím og samferðamenn hans.
Ævisaga Steingríms Hermannssonar er allt í senn; átakanleg örlagasaga, spennandi og skemmtileg, auk þess að vera uppfull af litríkum persónum og eftirminnilegum atvikum frá stórfróðlegri ævi.