Sólar saga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 2.065 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 2.065 kr. |
Um bókina
Ung íslensk kona verður fyrir hrottafenginni líkamsárás í fegurstu borg Ítalíu. Í stað þess að flýja heim í faðm ástvina sinna einsetur hún sér að reyna að ná aftur áttum – og um leið sáttum. Hvert eiga sáttaumleitanir hennar að beinast og hverjum á hún að fyrirgefa? Hún veit ekki hverjir árásarmennirnir eru eða hvar þeirra er að leita.
Sólar saga er frásögn stúlku sem ratar í djúpt myrkur fjarri ástvinum. Hún miðlar einsemd sinni, angist og sorg – og nýjum vonum – til lesandans í gegnum texta sem einkennist af óvenjulegri og myndrænni sýn. Þessi stíleinkenni þekkja þeir sem lesið hafa fyrri verk Sigurbjargar Þrastardóttur en ljóðabækur hennar Blálogaland (1999) og Hnattflug (2000) vöktu verðskuldaða athygli.
Sólar saga er fyrsta skáldsaga Sigurbjargar Þrastardóttur sem markar sér hér nýtt svið með eftirtektarverðum hætti. Sagan hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundsson árið 2002.
5 umsagnir um Sólar saga
Bjarni Guðmarsson –
„Grípandi og áhrifarík … skrifuð af eftirtektarverðri stílgáfu og list.“
Úr umsögn dómnefndar Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar
Bjarni Guðmarsson –
„[Sigurbjörg] útfærir þekkt en vandmeðfarið stef, nauðgun og ofbeldi, í texta sem er bæði vel skrifaður og einstaklega myndrænn … kraftmikil og sannfærandi … um manneskju sem svipt hefur verið því fallegasta sem hún átti: trúna á lífið og ástina.“
Sigríður Albertsdóttir / DV
Bjarni Guðmarsson –
„… lesandi verður djúpt snortinn … framvindan spennandi … sýnir hér áhrif alvarlegrar misnotkunar á myndænan og áhrifamikinn hátt og því er Sólar saga gefandi lestur fyrir alla sem unna góðum skáldskap.“
Hrund Ólafsdóttir / Morgunblaðið
Bjarni Guðmarsson –
„… mjög vel skrifuð … tekst gífurlega vel upp.“
Úlfhildur Dagsdóttir / Kastljós
Bjarni Guðmarsson –
„… hefur ekki bara áhrif á meðan á lestri stendur, heldur skilur hún eftir sig inni í sálartetri lesandans falleg orð og von.“
Elín Valgerður Guðlaugsdóttir / Stúdentablaðið