Sofandi að feigðarósi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 1.545 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 1.545 kr. |
Um bókina
Hér er gerð grein fyrir atburðarásinni sem leiddi til þess að bankakerfið á Íslandi varð gjaldþrota í október 2008 og sagan rakin fram á vorið 2009.
Bókin er skrifuð með læsileika að leiðarljósi og er auðveld aflestrar fyrir alla landsmenn, óháð þekkingu þeirra á hagfræði. Hún er glögg og næsta reyfarakennd lýsing á því hvernig íslenskt samfélag flaut sofandi að feigðarósi og oft miklu meira spennandi – og ótrúlegri – en hvaða glæpasaga sem er.
Í bókinni er ráðist harkalega á störf Davíðs Oddssonar, en Ólafur gerir því skóna að helstu mistök hans í starfi Seðlabankastjóra hafi verið að neita bönkunum um að gera upp í evrum. Þannig stýrði bankinn stöðutöku bankanna gegn krónunni og keyrði gjaldmiðilinn í kaf. Þessi leið var farin án alls samráðs við fagmenn í Seðlabankanum og bankamálaráðherra. Úr varð að starfsmenn bankans treystu ekki yfirstjórninni með Davíð í brúnni, og stjórnvöld tóku ekki mark á honum þegar hann lét viðvörunarorð falla.
Bókin spyr ýmissa áleitinna spurninga:
- Settu útrásarvíkingar Ísland á hausinn?
- Sagði Davíð Oddsson þjóðinni ósatt?
- Átti að færa Landsbankanum Glitni fyrir lítið?
- Drap Seðlabankinn íslensku krónuna?
- Hvaða áhrif höfðu neyðarlögin?
- … og margra annarra.
Ólafur Arnarson, höfundur bókarinnar, var um skeið framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður menntamálaráðherra í fyrstu ríkisstjórn Davíðs Oddssonar en hefur síðan unnið hjá innlendum og erlendum fjármálafyrirtækjum, m.a. hinum sögufræga Lehman-banka í London.
[dómar]
„Hiklaust hægt að mæla með bókinni ... höfundurinn á hrós skilið fyrir hana ... Gott yfirlit yfir þá atburði sem ollu hruninu.“
***1/2 stjarna
Ingi F. Vilhjálmsson / DV
[/dómar]