Á björtu sumarkvöldi hittast nokkur ungmenni á afviknum stað á Skáni til að fagna Jónsmessunni úti í náttúrunni. Þau eru í grímubúningum, full gleði og tilhlökkunar. Lífið brosir við þeim. En álengdar stendur maður sem brosir ekki, heldur bíður þess að gleðin nái hámarki. Þá lætur hann til skarar skríðða. Kurt Wallander rannsóknarlögreglumaður glímir við heilsuleysi og óyndi að afloknu sumarleyfi en þegar samstarfsmaður hans til margra ára finnst myrtur í íbúð sinni verður allt annað að víkja. Einu haldbæru vísbendingarnar í málinu eru tvær ljósmyndir, önnur af óþekktri konu, hin af kátum ungmennum í gamaldags búningum og með hárkollur. Brátt er Wallander kominn á blóði drifna slóð morðingjans en það liggur á: Kaldrifjaður byssumaður gengur laus – og lögreglan er skrefi á eftir.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar