Skírnarfjall
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 484 | 9.980 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 484 | 9.980 kr. |
Um bókina
Skírnarfjall, annar hluti Guðdómlega gleðileiksins eða Kómedíunnar eftir Dante Alighieri er áframhald á Víti sem kom út í bundnu máli árið 2018. Þýðandinn. Einar Thoroddsen, ákvað að nota orðið Skírnarfjall en ekki Hreinsunareldur eins og viðgengist hefur vegna þess að mestur hluti verksins fer í ferð upp fjall en ekki að vaða eld. Í Víti var skáldið að mestu áhorfandi en í þessum hluta þarf það að gera yfirbót sjálft. Skírnarfjall er því um hinn eiginlega þroska skáldsins en ekki eingöngu um afdrif fóks sem hann mætir á ferð sinni.
Þegar Lúsifer féll af himni í árdaga veraldar myndaði fall hans stallmyndaða trekt sem eru íverustaðir Vítis. Við myndun trektarinnar hlóðst upp fjall með stöllum hinum megin á jarðarkringlunni og það er Skírnarfjallið. Á fjallstindinum er Paradís en til að komast þangað þarf að sigrast á höfuðsyndunum sjö: Hroka, öfund, reið, nísku/eyðslusemi, leti, græðgi/óhófssemi og losta.
Guðrún útgáfa gefur út.