Skin

Útgefandi: Sæmundur
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 55 2.290 kr.
spinner

Skin

Útgefandi : Sæmundur

2.290 kr.

Skin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 55 2.290 kr.
spinner

Um bókina

Skin er sjötta ljóðabók Guðrúnar Hannesdóttur en hún hefur fyrir löngu skipað sér í hóp íslenskra góðskálda og var handhafi bókmenntaverðlauna Jóns úr Vör árið 2007.

Síðasta bók Guðrúnar Humátt (2015) var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Um hana segir í röksemdarfærslu dómnefndar m.a.: „Humátt er eftirminnileg, innihaldsrík og vönduð ljóðabók sem einkennist af skörpu innsæi, aðdáunarverðum stílbrögðum og óbilandi tilfinningu fyrir möguleikum ljóðsins. Bókin er uppfull af þeim nákvæmu en jafnframt kraftmiklu, óvæntu myndum sem eru eitt höfundareinkenna Guðrúnar Hannesdóttur.“

Ljóð þessarar bókar eru björt og einföld og má líkja við varfærnislegt ferðalag um og himinlendur og höf.

 

endurskin

tunglsljósið streymir
yfir borðið við gluggann

nú er lag að ná í fatið
láta það fyllast
að börmum

þvo hendur sínar
af allri synd

enginn sér dropana
sem falla á borðið

fyrr en dregur fyrir
tunglið á ný

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning