Samúel

Útgefandi: JPV
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2002 228 1.960 kr.
spinner

Samúel

Útgefandi : JPV

1.960 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2002 228 1.960 kr.
spinner

Um bókina

Samúel, söguhetja samnefndar skáldsögu Mikaels Torfasonar, er auðnulaus öryrki, Íslendingur sem býr í Danmörku. Brenglaður hugur hans horfir á heiminn frá þröngum sjónarhóli, hann er utangarðsmaður í margs konar skilningi. Samúel er haldinn ofsóknaræði og botnlausum ranghugmyndum um samskipti fólks, ást og kynlíf. Vanmáttur hans á rætur í sjúku sambandi við móður og fjölskyldu. Örvæntingarfull leit Samúels að sjálfum sér, sannleikanum og guði hrekur hann út á ystu nöf.

Mikael Torfason er einn kraftmesti og frumlegasti höfundur sinnar kynslóðar. Sprengikraftur, gálgahúmor og miskunnarleysi einkenna þessa sérstæðu sögu. Viðfangsefnið er ögrandi og löngu tímabært; þjóðernishyggja, kynþáttafordómar og sjálfsmynd útlendingsins.

Er „öxull hins illa“ raunveruleg ógn eða hræðsluáróður? Er lýðræðið nasismi nútímans? Hugmyndaheimur vitfirringsins er kannski ekki svo langt frá veruleikanum þegar að er gáð.

Næsta bók Mikaels á undan, Heimsins heimskasti pabbi , var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Menningarverðlauna DV. Samúel (2002) var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is