Salka Valka – með nútímastafsetningu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 537 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 1.990 kr. |
Salka Valka – með nútímastafsetningu
1.990 kr. – 3.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 537 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 1.990 kr. |
Um bókina
„Fátt er eins einkennilegt og fátækar vorlegar smámeyjar sem stíga dans í túni án þess að gruna hvað sumarið hefur í vændum, því síður haustið. Salka Valka situr við gluggann sinn saknandi í endurminningu þeirra dansa sem hún fékk aldrei að stíga…“
Sagan af uppvexti og þroska hinnar stoltu og sterku Sölku Völku á Óseyri við Axlarfjörð er í senn saga þorps og svipmikilla einstaklinga. Í þorpinu ræður kaupmaðurinn lögum og lofum en lífsbarátta alþýðunnar er hörð og óvægin. Þegar nýir vindar blása um samfélagið fara átakatímar í hönd – en ávallt leika ást og dauði undir.
Salka Valka er ein þekktasta skáldsaga Halldórs Laxness. Hún kom fyrst út í tveimur bindum 1931–1932 og hefur verið gefin út margoft síðan, heima og erlendis. Þessi útgáfa sögunnar er með venjulegri nútímastafsetningu og orðskýringum, en hvoru tveggja er ætlað að gera hana aðgengilegri fyrir lesendur.
Orðskýringar bókarinnar má nálgast hér.