Saga: 2019 LVII: 1

Útgefandi: Sögufélag
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 3.790 kr.
spinner

Saga: 2019 LVII: 1

Útgefandi : Sögufélag

3.790 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 3.790 kr.
spinner

Um bókina

Tímaritið Saga kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Þrjár ritrýndar greinar eru í heftinu: Erla Hulda Halldórsdóttir skrifar um sagnaritun íslenskra kvenna fyrir tíma akademískrar kvennasögu, Árni Daníel Júlíusson fjallar um mannvíg og morð á Íslandi frá fimmtándu öld til sautjándu aldar og Arnór Gunnar Gunnarsson skrifar um Rainbow Navigation-málið svokallaða sem átti sér stað um miðjan níunda áratug síðustu aldar og snerist um vöruflutninga fyrir varnarliðið.

Í „Álitamálum“ Sögu að þessu sinni fjalla fjórir íslenskir og danskir fræðimenn um söguleg tengsl Íslands og Danmerkur. Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðbrandur Benediktsson veita lesendum innsýn í vinnu við nýja grunnsýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík og Marjatta Ísberg skrifar viðhorfsgrein um sögu líkklæða á Íslandi. Í þættinum „Úr skjalaskápnum“ dregur Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir fram athyglisverða uppboðsskrá frá Viðey. Auk þess er að finna í heftinu ellefu ritdóma um nýleg sagnfræðiverk og eina athugasemd við ritdóm. Kápuna prýðir mynd af tveimur samstarfskonum á reykvískri ljósmyndastofu um 1910 og skrifa Íris Ellenberger, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Ásta Kristín Benediktsdóttir pistil um myndina þar sem þær setja hana í samhengi við hugmyndir um rómantíska vináttu kvenna.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning