Rigmarole and Flies
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 69 | 2.990 kr. |
Rigmarole and Flies
2.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 69 | 2.990 kr. |
Um bókina
Rigmarole and Flies er fyrsta enska þýðingin á Þulum Theodóru Thoroddsen og Flugum Jóns Thoroddsen. Þulur (1916) Theodóru Thoroddsen hafa fyrir löngu fest sig í sessi í íslenskum bókmenntum og menningu. Hinn enskumælandi heimur fær nú loks tækifæri til að kynna sér fegurð þeirra og hvernig þær sameina hefðbundna þræði og nýrómantík í íslenskri ljóðagerð.
Flugur Jóns komu út árið 1922, ekki löngu fyrir ótímabært andlát hans í Kaupmannahöfn. Hér er á ferð fyrsta ljóðabókin á íslensku í óbundnu máli og sem slík markar hún þáttaskil í sögu íslenskrar ljóðagerðar. Í sameiningu gefa Þulur og Flugur lesendum sínum tækifæri til að skynja einstakt framlag beggja höfunda til íslenskra bókmennta og ríkulegrar sögu þeirra.
Þýðandinn er kanadíski fræðimaðurinn Christopher Crocker og formála skrifar Ármann Jakobsson, rithöfundur og prófessor við Háskóla Íslands.