Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Réttlæti og ranglæti
Útgefandi: MM
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1998 | - | 2.065 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1998 | - | 2.065 kr. |
Um bókina
Þorsteinn Gylfason heimspekingur kann þá list að orða hugsun sína skilmerkilega og skemmtilega, jafnt í ræðu sem riti. Í þessari bók er að finna margt það merkasta sem hann hefur látið frá sér fara í rúman aldarfjórðung um stjórnmálaheimspeki eða stjórnspeki og skyld efni. Hún er safn fimmtán ritgerða og skiptist í þrjá hluta.
Í þeim fyrsta gerir Þorsteinn atrennur að réttlæti, annar hluti geymir athuganir á siðfræði og í þeim þriðja gerir hann atlögur að hugmyndaheiminum, svo sem marxisma, frjálshyggju, nytjastefnu og hlutleysiskenningunni um vísindin.