Ragnar Axelsson hefur á undanförnum árum skapað sér æ stærra nafn í heimi alþjóðlegrar ljósmyndunar. Bókaútgáfa, sýningar og heimildamynd hafa vakið athygli á umfangsmiklu safni hans af myndum af breytingum á lifnaðarháttum íbúa norðurslóða og hafa verk hans verið birt í fjölmiðlum um allan heim.
Í tengslum við sýningar og birtingu ljósmynda Ragnars af norðurslóðum í Frakklandi varð til ný bók sem kemur út samtímis í Frakklandi og á Íslandi á frönsku og ensku. Bókin er hluti af ritröðinni Photo Poche, sem er fyrir löngu orðin að stofnun í sögu
ljósmyndarinnar, og miðar að því að birta í ódýrum og handhægum útgáfum verk þeirra ljósmyndara sem mest áhrif hafa haft á þróun miðilsins frá upphafi. Í bókinni er að finna breitt úrval mynda frá ýmsum löndum sem spanna yfir þriggja áratuga feril Ragnars.
Ragnar Axelsson hefur á undanförnum árum skapað sér æ stærra nafn í heimi alþjóðlegrar ljósmyndunar. Bókaútgáfa, sýningar og heimildamynd hafa vakið athygli á umfangsmiklu safni hans af myndum af breytingum á lifnaðarháttum íbúa norðurslóða og hafa verk hans verið birt í fjölmiðlum um allan heim.
Í tengslum við sýningar og birtingu ljósmynda Ragnars af norðurslóðum í Frakklandi varð til ný bók sem kemur út samtímis í Frakklandi og á Íslandi á frönsku og ensku. Bókin er hluti af ritröðinni Photo Poche, sem er fyrir löngu orðin að stofnun í sögu ljósmyndarinnar, og miðar að því að birta í ódýrum og handhægum útgáfum verk þeirra ljósmyndara sem mest áhrif hafa haft á þróun miðilsins frá upphafi. Í bókinni er að finna breitt úrval mynda frá ýmsum löndum sem spanna yfir þriggja áratuga feril Ragnars.