Purpuraliturinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 299 | 2.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2013 | 299 | 2.290 kr. |
Um bókina
Purpuraliturinn er saga um gleði, sársauka og ást; saga sem höfðar til dýpstu tilfinninga lesandans.
Celie er fátæk og ómenntuð blökkustúlka sem elst upp í Suðurríkjum Bandaríkjanna snemma á 20. öld. Hún er misnotuð frá barnæsku, barin og hrakin, þvinguð í ástlaust hjónaband, varla læs eða skrifandi, en sest þó niður og skrifar Guði bréf – því hann er sá eini sem hún treystir og stendur með henni, fyrir utan systur hennar sem er órafjarri. Og smám saman lærir Celie að berjast fyrir lífi sínu og öðlast kjark til að hlæja, ærslast og loks að elska.
Purpuraliturinn er eitt kunnasta verk bandarískra bókmennta á síðustu áratugum og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, auk þess sem Steven Spielberg gerði kvikmynd eftir sögunni. Höfundurinn, Alice Walker, er þekkt baráttukona sem hefur sent frá sér skáldsögur, smásagnasöfn og ljóðabækur en Purpuraliturinn er þekktasta verk hennar.
Ólöf Eldjárn þýddi og Guðrún Elsa Bragadóttir ritar eftirmála að þessari útgáfu.
2 umsagnir um Purpuraliturinn
Elín Edda Pálsdóttir –
„Gríðarsterkur tilfinningamáttur … Hefur óafmáanleg áhrif.“
The New York Times Book Review
Elín Edda Pálsdóttir –
„Stórkostlegar persónur … Opinberunarsaga … Eitt af stórvirkjum nútímans.“
Essence