Pottur, panna og Nanna

Útgefandi: Iðunn
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 239 3.390 kr.
spinner

Pottur, panna og Nanna

Útgefandi : Iðunn

3.390 kr.

Pottur. panna og Nanna
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 239 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Nanna Rögnvaldardóttir hefur lengi haft dálæti á pottum og pönnum úr steypujárni. Í þeim er hægt að elda næstum hvað sem er eins og sést á ótrú­lega fjölbreyttum uppskriftum í þessari bók, sem hefur að geyma ýmsa af uppáhaldsréttum hennar – en það er líka hægt að elda þá í öðrum pottum, pönnum og ílátum.

Margir tengja steypujárnspotta fyrst og fremst við hægeldaðar steikur, pottrétti og hveitibrauð og margar girnilegar uppskriftir af því tagi eru í bókinni. En hér eru einnig grænmetisréttir, súpur og meðlæti, sósur og pönnukökur, snöggsteiktur skelfiskur og djúpsteiktir réttir, sætt bakkelsi og alls konar góðgæti. Hér eru íslenskar flatkökur og franskt andaconfit, indverskir karríréttir, írskt sódabrauð, ofnbakaður grjónagrautur og um hundrað aðrir gómsætir réttir.

Í bókinni er einnig fjallað ítarlega um val, meðferð og umhirðu á steypu­járni og kosti þess við eldamennsku af öllu tagi.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning