Póstkortamorðin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2010 | 317 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2010 | 317 | 990 kr. |
Um bókina
Bandaríski lögreglumaðurinn Jacob Kanon ferðast milli evrópskra stórborga í leit að morðingja dóttur sinnar og unnusta hennar. Þau voru myrt í Róm og síðan hafa ung pör í fleiri borgum hlotið sömu örlög.
Áður en voðaverkin eru framin senda morðingjarnir póstkort til blaðamanns á staðnum – og síðar ljósmynd af líkunum. Kanon og sænska blaðakonan Dessie Larsson reyna að finna mynstur í óhugnanlegum raðmorðunum – en tekst þeim að stöðva hryllinginn?
Hér stilla tveir spennusagnameistarar, bandaríski metsöluhöfundurinn James Patterson og sænska glæpasagnadrottningin Liza Marklund, saman strengi sína í fyrsta sinn. Glæpasagnaunnendur þekkja þau bæði af góðu en Patterson er margkrýndur meistari spennusögunnar og selur fleiri bækur á heimsvísu heldur en flestir kollegar hans – þó þeir leggi saman. Marklund er enginn nýgræðingur heldur og verma bækur hennar toppsæti metsölulista víða um heim.
Guðni Kolbeinsson þýddi.
2 umsagnir um Póstkortamorðin
Kristrun Hauksdottir –
„… hin fínasta skemmtun, blóðug og hröð en líka rómantísk.“
Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Hér leggja saman James Patterson og Liza Marklund í æsispennandi reyfara … þeim tekst alveg að halda manni við efnið … fjandinn hafi það, þetta er skemmtilegt… þetta er mjög sniðug blanda sem svínvirkar.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan