Peningar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 152 | 4.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 152 | 4.290 kr. |
Um bókina
Bókin Peningar varpar ljósi á áhugaverðar, spaugilegar og stundum hreit út sagt ótrúlegar hliðar fjármála á lifandi og aðgengilegan hátt. Litið er bak við tjöldin meðal annars í heimi kvikmynda, tölvuleikja, fótbolta, tónlistar og tísku og fjallað um bæði það sem vel hefur tekist og það sem farið hefur á versta veg. Nokkur dýrkeyptustu mistök fjármálasögunnar eru reifuð á síðum þessarar bókar en einnig eru sagðar sögur af snilligáfu fólks á sviði fjármála. Í bókinni má líka finna góð ráð um meðferð sparifjár og leitast er við að vekja áhuga lesenda á fjármálum. En fyrst og fremst er bókinni ætlað að sanna að peningar geta verið skemmtilegir.
Björn Berg Gunnarsson hefur starfað við eflingu fjármálalæsis og fjármálafræðslu fyrir almenning í meira en áratug.
Auður Ýr Elísabetardóttir teiknar myndir bókarinnar sem glæða síður hennar frekara læsi.