Óþelló
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 195 | 3.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 195 | 3.490 kr. |
Um bókina
„… Afbrýðisemin er græneygða skrímslið sem að öllu hlær sem fitar það og nærir …“
Óþelló er sígilt meistaraverk, æsispennandi harmleikur um valdabaráttu, losta og afbrýðisemi, sem talið er að William Shakespeare hafi ritað árið 1603 og er byggt á Un Capitano Moro eftir ítalska skáldið Cinthio. Þessi örlagasaga hverfist um Óþelló, foringja í her Feneyinga; Desdemónu, heittelskaða eiginkonu hans; Kassíó, trygglyndan vin, og hinn undirförla Jagó sem nýtur trausts Óþellós en svíkur hann þó.
William Shakespeare (1564–1616) var leikari, leikskáld og ljóðskáld og enn eru leikrit hans sett upp um allan heim. Óþelló birtist hér í nýrri þýðingu Hallgríms Helgasonar í tilefni af 400 ára ártíð þessa höfuðsnillings enskra bókmennta, og er jafnframt jólasýning Þjóðleikhússins 2016.
Hallgrímur Helgason þýddi og hlaut fyrir þýðingu sína tilnefningu til Íslensku þýðingarverðlaunanna 2016.
1 umsögn um Óþelló
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Þýðing Hallgríms er afar vönduð, fyndin og léttleikandi og skilar merkingu textans á auðskiljanlegu og skýru máli.“
Umsögn dómnefndar Íslensku þýðingarverðlaunanna