Orðastaður
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1900 | 7.050 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 1900 | 7.050 kr. |
Um bókina
Orðabók um íslenska málnotkun – Aukin og endurskoðuð útgáfa
Hvernig er þetta sagt? Hvernig á ég að orða það?
Þessar spurningar leita oft á hugann þegar orðalagið liggur ekki í augum uppi. Þá er gott að hafa orðabók við höndina og geta rakið sambönd þeirra orða sem helst koma upp í hugann. Þegar lýsing orðanna er skoðuð kemur oft í ljós að margra kosta er völ og orðin eiga sér margbreytilegt notkunarmynstur.
Í Orðastað eru rakin virkustu orðasambönd 11 þúsund flettiorða, í 45 þúsund orðasamböndum ásamt 15 þúsund notkunardæmum, að viðbættum 100 þúsund samsettum orðum. Lýsingin er rækilega flokkuð, svo að auðvelt er að fá yfirsýn og finna það sem leitað er að.
Í þessari nýju og endurbættu útgáfu er það nýmæli að birtur er valinn málsháttur við rösklega 1100 flettiorð.
Orðastaður er ómetanleg orðabók þegar finna skal heppilegt og viðeigandi orðalag. Með þessari bók er bætt úr brýnni þörf fyrir alla sem tjá sig í ræðu og riti.
Orðastaður ? orðabók um íslenska málnotkun er ómissandi bók á hverju heimili og í fyrirtækjum. Hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1994..
Í Orðastað eru sambönd orðanna á sínum stað.