Eragon #2: Öldungurinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 1.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 1.190 kr. |
Um bókina
Myrkur fellur á – örvænting grípur um sig – hið illa ræður ríkjum
Eragon og Safíra, drekinn hans, hafa nýlokið við að bjarga Vörðunum frá tortímingu; en Verðirnir eru hópur uppreisnarmanna gegn Galbatorix, hinum grimma konungi Veldisins. Síðan þarf Eragon að halda til Ellesméra, lands álfanna, til að hljóta frekari þjálfun sem drekariddari; í töfrum og vopnfimi. Þar með tekst hann á hendur einstaka ferð, kynnist áhrifamiklum stöðum og fólki og dagarnir eru hver öðrum ævintýralegri. En upplausn og svik leynast víða og ekkert er eins og það sýnist. Brátt veit Eragon ekki lengur hverjum hann getur treyst.
Á meðan þessu fer fram neyðist Roran frændi hans til að heyja baráttu á öðrum vettvangi – og sú barátta gæti stefnt Eragon í enn meiri hættu.
Ber svartur hnefi konungs niður alla mótspyrnu? Á baráttan gegn honum eftir að kosta Eragon lífið?
2 umsagnir um Eragon #2: Öldungurinn
Kristrun Hauksdottir –
„Maður galdrast inn í þetta … Ég get ekki hætt að lesa þegar ég byrja á þessari bók … mér finnst þessi frábær … Ég mæli með þessari bók fyrir alla þá sem hafa gaman af ævintýrabókum.“
Gunnar Helgason / Helgarútgáfan, Rás 2
Kristrun Hauksdottir –
„… stórfenglegt skáldverk þar sem stríð, töfrar og ástin ráða ríkjum og stendur svo sannarlega undir væntingum. Spennandi og töfrandi ævintýrabók.“
Sigurþór Einarsson / Fréttablaðið