Ofsóttur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 317 | 2.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 317 | 2.190 kr. |
Um bókina
Bill Browder snýr hér aftur í kjölfar metsölubókar sinnar, Eftirlýstur, með aðra hörkuspennandi bók sem lýsir því hvernig hann afhjúpaði viðleitni Pútíns til að stela og þvætta hundruð milljarða Bandaríkjadala frá Rússlandi – og að Pútín sé reiðubúinn að drepa hvern þann sem stendur í vegi fyrir honum.
Browder dregur hér upp mynd af rússnesku ríkisstjórninni sem glæpagengi sem fer með öll völd í landinu. Ofsóttur er hrikaleg en sönn saga sem gerist í hásölum pólitísks valds þar sem svik, mútur, spilling og misþyrmingar viðgangast hvar sem litið er. Þetta er í senn saga um fjármálaglæpi, alþjóðlegt ævintýri og ástríðufullt ákall um réttlæti.
Ofsóttur er áhrifarík og uppbyggileg saga um það hvernig einn maður getur tekist á við einhvern hættulegasta og ósvífnasta glæpamann í heimi.