Ófreskjan í mýrinni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 93 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 2.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Ófreskjan í mýrinni
2.690 kr. – 3.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 93 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 2.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Um bókina
Í útjaðri lítils þorps standa tvö hús; annað þeirra er blámálað og umkringt þéttum trjálundi, hitt er bæði grátt og hrörlegt. Handan við húsin er mýrin, víðáttumikil og hættuleg. Enginn hefur búið í gráa húsinu árum saman en allt í einu birtist þar fjölskylda, pabbi og þríburar. Þau komast fljótt að því að í bláa húsinu býr önnur fjölskylda, strákur og þrjár mömmur. Einhverjir eru líka að pukrast í mýrinni. Líklega vita þau ekki að þar býr ófreskja!
Ófreskjan í mýrinni er dularfull og spennandi saga eftir Sigrúnu Eldjárn, sem hefur sent frá sér fjölmargar vinsælar bækur fyrir börn og unglinga og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín, nú síðast heiðursverðlaun Sagna, verðlaunahátíðar barnanna. Sagan er prýdd fjölda mynda.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 1 klukkustundir og 45 mínútur að lengd. Haraldur Ari Stefánsson les.
Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni:
5 umsagnir um Ófreskjan í mýrinni
embla –
„Þetta er frábær bók fyrir lesendur sem eru byrja að fara upp í kaflabækurnar með þessum fallegum myndskreytingum, stuttum köflum og spennandi framvindu.“
Sunna Dís Másdóttir / Kiljan
embla –
„Þetta er vel fléttað, þetta er spennandi ráðgátu saga og dáldið skemmtileg fyrir börn sem eru aðeins of ung fyrir hana.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
embla –
„Sumar síðurnar eru algjört listaverk, það verður að segjast eins og er.“
Egill Helgason / Kiljan
embla –
„Með þessari sögu gefur Sigrún börnum enn og aftur tækifæri til að upplifa skemmtilegt ævintýri og benda þeim á að það má búa til sögur og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.“
Rósa Harðardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Stórskemmtileg frásögn sem markast af spennu, dulúð og kátínu. Unnið er á frumlegan hátt með íslenska þjóðtrú. Textinn vísar jafnt í fortíð og nútíð, heimsbókmenntir og dægurmenningu þannig að úr verður snjöll og velheppnuð blanda. Ríkulegar og fallegar myndlýsingar auðga söguna og sveipa hana töfraljóma.“
Umsögn dómnefndar Íslensku bókmenntaverðlaunanna