Njósnarinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 173 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 173 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Þegar Mata Hari kom til Parísar var hún allslaus en ekki leið á löngu þar til hún var lofsungin sem helsta glæsikvendi borgarinnar. Hún var dansmær sem hneykslaði og heillaði áhorfendur, gjálífiskona sem lagði álög sín á valdamestu menn samtímans og átti trúnað þeirra. En á styrjaldartímum grípur vænisýki um sig og lífsstíll Mata Hari kveikti grunsemdir. Árið 1917 var hún handtekin og sökuð um njósnir.
Njósnarinn er saga Mata Hari, sögð í síðasta bréfi hennar, ógleymanleg saga af konu sem þorði að brjóta siðalögmál samtíma síns og þurfti að gjalda fyrir það.
Paulo Coelho finnur innblástur fyrir bækur sínar í eigin lífi. Hann hefur daðrað við dauðann, fitlað við fíkniefni, þolað pyntingar, fengist við galdra og alkemisma, sökkt sér niður í heimspeki og trúarbragðafræði, misst trúna og fundið hana aftur og upplifað sársauka og nautn ástarinnar. Þekktasta skáldsaga hans, Alkemistinn, hefur selst í yfir 65 milljónum eintaka og enginn lifandi höfundur hefur verið þýddur á fleiri tungumál. Hann hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.
Kristín Svava Tómasdóttir þýddi.
2 umsagnir um Njósnarinn
gudnord –
„Sláandi skáldsaga … Að lokum munu lesendur trúa því að þeir hafi raunverulega verið að lesa bréf [Mata Hari].“
Publishers Weekly
gudnord –
„Heillandi lífssaga … fallega skrifuð og grípandi.“
Sunday Mirror