Natríumklóríð: Deild Q #9
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | ||
Kilja | 2022 | 453 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Natríumklóríð: Deild Q #9
1.990 kr. – 3.690 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | ||
Kilja | 2022 | 453 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Um bókina
Sjálfsvíg sextugrar konu verður til þess að gamalt, óupplýst mál rifjast upp fyrir yfirmanni morðdeildar lögreglunnar – gríðaröflug sprenging á bílaverkstæði sem drap fimm bílvirkja og barn viðskiptavinar – og hann felur Deild Q að kanna það að nýju. Torkennileg salthrúga á vettvangi tengir atvikið fleiri dauðsföllum sem sum hver vöktu mikla athygli en voru flokkuð sem sjálfsvíg eða slys. Brátt verður Carl Mørck og félögum hans, Rose, Assad og Gordon, ljóst að fleiri líf geti verið í hættu …
Natríumklóríð er níunda bókin um Deild Q í dönsku lögreglunni eftir glæpasagnameistarann Jussi Adler-Olsen. Bókaflokknum hefur verið gríðarvel tekið af lesendum og gagnrýnendum og fyrir hann hefur höfundur hlotið öll helstu verðlaun sem veitt eru glæpasögum. Vinsælar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir ráðgátum Deildar Q.
Jón St. Kristjánsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 14 klukkustundir og 41 mínútur að lengd. Davíð Guðbrandsson les.
1 umsögn um Natríumklóríð: Deild Q #9
embla –
„Natríumklóríð er yfirgripsmikil spennusaga.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið