Myrkvun
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 528 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 528 | 990 kr. |
Um bókina
Hann tók mig strax í fangið eins og á bílastæðinu og kyssti mig aftur. Kossinn gerði mig hrædda. Það var of mikil spenna, of margt sem bjó á bak við varirnar sem þrýstust fast að vörum mínum – eins og hann væri hræddur um að við ættum ekki mikinn tíma eftir saman…
Isabella er enn í stofufangelsi og pabba hennar er ekkert ljúft að gefa henni frelsi, allra síst þegar morðingi gengur laus – eða morðgengi miðað við fjölda myrtra í Seattle. Til allrar hamingju veit hann ekki um hinar hætturnar sem steðja að dóttur hans. Hér þarf Isabella enn og aftur að velja á milli kærastans og besta vinarins; vampírunnar og varúlfsins. Og eftir útskrift stendur hún frammi fyrir öðru og erfiðara vali: milli lífs og dauða. En hvað er líf og hvað dauði?
Ekkert lát er á vinsældum bókanna um Isabellu Swan og Edward Cullen og hefur Myrkvun selst í milljónum eintaka um allan heim.
Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.
2 umsagnir um Myrkvun
Elín Pálsdóttir –
„Ég gat ekki hætt að lesa … hrikalega spennandi … besta bókin af þeim þremur sem komnar eru.“
Kolbrún Ósk Skaftadóttir / midjan.is
Elín Pálsdóttir –
„Aðdáendaskarinn … mun rífa í sig þetta þriðja bindi sögunnar sem hófst með Ljósaskiptum.“
Publishers Weekly