Myrkrið milli stjarnanna
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 191 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. |
Myrkrið milli stjarnanna
1.990 kr. – 3.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 191 | 3.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. |
Um bókina
Myrkrið milli stjarnanna er martraðakennd samtímasaga sem dregur lesendur inn í myrkustu kima Reykjavíkur. Iðunn vaknar alltaf þreytt á morgnana. Allir hafa ráð á reiðum höndum – læknirinn, sálfræðingurinn, vinkonurnar – en ekkert þeirra fær að heyra alla söguna. Hún segir engum frá leyndarmálunum sem hrannast upp og stigmagnast; frá myrkrinu sem er ólíkt öllu öðru myrkri. Iðunn segir engum frá henni. Hildur Knútsdóttir hefur skrifað skáldskap fyrir börn og fullorðna en er þekktust fyrir ungmennabækur sínar sem unnið hafa til fjölda verðlauna. Myrkrið milli stjarnanna er fyrsta hrollvekja hennar fyrir fullorðna.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 2 klukkustundir og 37 mínútur að lengd. Birna Pétursdóttir les.
4 umsagnir um Myrkrið milli stjarnanna
embla –
„[…] æsispennandi hrollvekja sem kallar fram tilfinningaleg og líkamleg viðbrögð hjá lesandanum.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Dularfull og spennandi hryllingssaga sem skilur eftir ónotatilfinningu.“
Þorvaldur S. Helgason / Fréttablaðið
embla –
„… spennandi og nokkuð hrollvekjandi frásögn af því hvernig samsamaðar vitundir geta rekist á og valdið örlögum sem varða bæði líf og dauða, manna jafnt sem katta, og þótt ekki sé komin hér nein stórsaga upp á hundruð blaðsíðna þá er vel hægt að stytta sér stundir með snarpri og spennandi sögu um svefngengla og tvífara.“
Gauti Kristmannsson / Víðsjá
embla –
„Lesendur sem sækja í hrylling, furðu og spennu eiga sannarlega von á góðu.“
Guðrún Steinþórsdóttir / Skáld.is