Múmínálfarnir – stórbók: 3. bindi

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 495 4.290 kr.
spinner

Múmínálfarnir – stórbók: 3. bindi

Útgefandi : MM

4.290 kr.

Múmínálfarnir 3
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 495 4.290 kr.
spinner

Um bókina

Allir þekkja múmínálfana, þessar stórskemmtilegu ævintýraverur sem hafa glatt ótal börn og fullorðna áratugum saman – í sjónvarpsþáttum, teiknimynda-sögum, bíómyndum og ekki síst bókum.

Þessi bók geymir síðustu þrjár sögurnar um múmínálfana. Sjöunda og áttunda bókin hafa verið ófáanlegar árum saman: smásagnasafnið Ósýnilega barnið, þar sem margs konar háski steðjar að söguhetjunum, og Eyjan hans múmínpabba en þar finnst múmínpabba hann ekki vera til nokkurs gagns lengur svo hann flytur með fjölskylduna á eyðieyju langt úti í hafi. Níunda bókin, Seint í nóvember, birtist nú í fyrsta skipti á ís­lensku en hún gerist á meðan múmínfjölskyldan er á eyjunni. Þá koma hemúll, fillífjonka, Snúður, kaskurinn Þófti og Skari gamli í múmíndal í leit að múmínfjölskyldunni en finna ýmis­legt dýrmætt í hennar stað.

Rithöfundurinn, listmálarinn og teiknarinn Tove Jansson skapaði múmínálfana. Hún gerði um þá teiknimyndasögur, leikrit, myndskreyttar barna­bækur og skrifaði níu sögubækur. Nú eru þær loks allar fáanlegar á íslensku, í veglegum stórbókum.

Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir þýddi Ósýnilega barnið, Steinunn Briem þýddi Eyjuna hans múmín­pabba og Þórdís Gísladóttir þýddi Seint í nóvember.

Tengdar bækur