Morðið í Öskjuhlíð
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 252 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | - | 2.990 kr. |
Morðið í Öskjuhlíð
2.990 kr. – 3.690 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 252 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Árið er 1995 og Stella Blómkvist er nýútskrifaður lögfræðingur. Þegar þekktur blaðamaður hverfur í tengslum við rannsóknir sínar dregst hún inn í mál sem verður fljótlega að snúinni morðgátu sem teygir anga sína víða um heiminn. Og þegar ung kona þarf að leita réttar síns eftir nauðgun getur Stella ekki annað en hjálpað henni, jafnvel þótt valdamiklir aðilar reyni að stöðva hana.
Hér er allt á sínum stað: góðkunningjar og hjálparkokkar eins og Nonni Daníels, ástkonur og elskhugar – og óbilandi réttlætiskennd.
Morðið í Öskjuhlíð er þrettánda bókin um Stellu Blómkvist, þetta kjaftfora, ofursvala og óþreytandi gæðablóð sem vílar ekki fyrir sér að takast á við morðingja og valdasjúka siðvillinga vopnuð snarræði, innsæi, tilsvörum og spakmælum frá mömmu.
1 umsögn um Morðið í Öskjuhlíð
embla –
„Stella Blómkvist kemur hress inn í sumarið með Morðinu í Öskjuhlíð …“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið