Mörgæs með brostið hjarta
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 128 | 2.990 kr. |
Mörgæs með brostið hjarta
2.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2020 | 128 | 2.990 kr. |
Um bókina
STEFÁN MÁNI REYNIR FYRIR SÉR Á SVELLI ÁSTARINNAR
Rithöfundurinn Stefán Máni hefur verið einn fremstu spennusagnahöfunda landsins um langt skeið og hafa bækur hans um lögreglumanninn Hörð Grímsson notið gríðarlegrar hylli hér heima sem og erlendis. Stefán hefur skrifað yfir annan tug bóka, þó spennusögur séu hans aðalmerki hefur hann þó skrifað skáldsögur af öðrum toga sem og barnabækur.
Hingað til hefur Stefán þó aldrei skrifað ástarsögu en nú lítur dagsins ljós bókin Mörgæs með brostið hjarta. Ástarsaga á tímum hamfarahlýnunar. Bókin fjallar um óframfærinn rithöfund sem berst, vopnaður gamaldags ritvél, við handrit að sinni fyrstu skáldsögu. Mörgæs með mannlegar tilfinningar kemur við sögu og þjónustustúlka á kaffihúsi með órræðið húðflúr.
Bókin kallast, á skemmtilegan eða óþægilegan máta, á við veruleika okkar þessi dægrin en minnir okkur um leið á það sem skiptir okkur hve mestu máli, sem er ástin.