Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Móðurhugur
Útgefandi: JPV
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 160 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 160 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Einkadóttir Theodóru liggur í dái og móðirin samþykkir að tækin verði aftengd. Hvernig er hægt að lifa með slíkri ákvörðun? Theodóra er skáld og hennar leið er að setja saman bók til minningar um Ingu dóttur sína, sem varð ástfangin af Abel, transmanni sem var ekki ástfanginn af henni.
Móðurhugur er skáldsaga um ástina, lífið og dauðann, um leitina að sátt við sjálfan sig og aðra, um mörkin milli skáldskapar og veruleika.
Kári Tulinius gaf út fyrstu bók sína, Píslarvottar án hæfileika, 2010. Hann er einn af stofnendum og ritstjórum Meðgönguljóða.
7 umsagnir um Móðurhugur
Árni Þór –
„Úthugsuð, marglaga saga.“
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson / Starafugl
Árni Þór –
„Hér er á ferð umhugsunarverð saga skrifuð af lipurð.“
Steingerður Steinarsdóttir / Vikan
Árni Þór –
„… hugarvíkkandi bók … þar sem allar hvunndagsviðmiðanir fortíðar eru leystar upp og skáldskapurinn fær að elta innri lógík sína, nánast eins og náttúrulögmál … fersk og spennandi og já … tja, einhvern veginn ber hún með sér að höfundurinn sprettur ekki bara úr einum heimi.“
Auður Jónsdóttir / Facebook
Árni Þór –
„Kári er ótvírætt efnilegur höfundur og það leynir sér ekki á oft og tíðum lipurlega skrifuðum málsgreinum að hann er vel ritfær … forvitnilegt verk þar sem margar spennandi hugmyndir eru reifaðar og margt vel gert.“
Magnús Guðmundsson / Fréttablaðið
Árni Þór –
„Hugmyndalega mjög ríkt verk …“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
Árni Þór –
„Þematískt er hún mjög stór. Hún markar sér stóran söguvettvang.“
Egill Helgason / Kiljan
Árni Þór –
„Mjög sérstök skáldsaga sem má spyrja sig um hvort jafnvel marki einhvers konar skil í íslenskum bókmenntum. Hér er fjallað um internetið og samskiptin þar, skáldskapinn sem verður til út frá internetinu. Í bókinni er einnig fjallað um líkamlegt kyn, skynjað kyn og samfélagslegt kyn, um trúarbrögð og forna klassík…“
Jórunn Sigurðardóttir / Orð um bækur