Missir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 131 | 3.100 kr. | ||
Kilja | 2010 | 128 | 2.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 131 | 3.100 kr. | ||
Kilja | 2010 | 128 | 2.190 kr. |
Um bókina
Hvert leitar hugurinn þegar komið er á leiðarenda og fátt er framundan nema eilífið sjálf? Til liðinnar tíðar … sem geymir misfagrar minningar.
Ekkert rífur þögnina nema miskunnarlaust suðið í katlinum, hversdagslegur undirleikur við uppgjör einmana manns við tilveru sína, ástina eða ástleysið sem nær yfir mörk lífs og dauða – og ellina, það hlutskipti sem allra bíður þegar líkaminn hrörnar og þrekið þverr.
Guðbergur Bergsson veitir hér ögrandi og óvænta sýn inn í þá hversdagsheima sem allir þekkja en hver og einn fetar á sinn einstaka hátt. Missir er saga sem afhjúpar einstaklinginn gagnvart óhjákvæmilegum örlögum sínum.
Bókin var gefin út innbundin í þúsund tölusettum og árituðum eintökum og geisladiskur með upplestri höfundar á verkinu fylgir.
Valin besta bók ársins 2010 af gagnrýnendum Morgunblaðsins, Kolbrúnu Bergþórsdóttur og Árna Matthíassyni: „Guðbergur hefur hér meistaraleg tök á efninu og frásögninni allri. Missir er tvímælalaust eitt af hans áhrifameiri verkum, knappt og meitlað og vekur lesendann til umhugsunar.“
4 umsagnir um Missir
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… tvímælalaust eitt af hans áhrifameiri verkum, knappt og meitlað og vekur lesandann til umhugsunar.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„…ægileg og ágeng bók um hrörnunina og dauðann … áhrifarík, sláandi og athyglisverð.“
Jóhann Hauksson / DV
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„ … mjög fallega skrifað verk … hrífandi … það sem hann ætlar sér – að lýsa einmanaleik og hnignun síðustu áranna sem maðurinn lifir – er gert af virðingu og smekkvísi.”
Páll Baldvin Baldvinsson / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Þetta er meistaraleg frásögn af því þegar ellin hremmir mann … þetta er fyndið en mjög nöturlegt … Óskaplega fallega skrifuð bók.”
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan