Miðaldir í skuggsjá Svarfaðardals
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 339 | 7.990 kr. |
Miðaldir í skuggsjá Svarfaðardals
7.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 339 | 7.990 kr. |
Um bókina
Hér er fjallað um sögu Svarfaðardals frá landnámi fram á 16. öld. Dalurinn er sérlega auðugur af fornleifum og öðrum heimildum um forna tíma og þær eru nýttar hér til að skyggnast inn í fortíðina. Það kemur nokkuð á óvart að samfélagsgerðin virðist í fyrstu hafa einkennst af jöfnuði og dreifingu eigna en við upphaf ritaldar setti vaxandi misskipting og valdasókn höfðingja svip á samfélagið og því fylgdi hernaður og ofbeldi.
Fjallað er um höfuðbólin Velli og Urðir, kirkjunnar menn og veraldlega höfðingja sem þar sátu, en einnig um kotbýli og sel, bændur, vinnufólk og fátæklinga. Greint er frá landsháttum, gróðurfari og búskap á miðöldum og sagt frá því hvernig þessu samfélagi reiddi af í svartadauða.
Bókin á sér upphaf í drögum Kristjáns Eldjárns að riti um miðaldasögu Svarfdæla, sem hann setti á blað í forsetatíð sinni. Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur tók upp þráðinn og nýtir sér nýjustu rannsóknir til að skoða og greina mannlíf í Svarfaðardal á miðöldum. Bókin er ríkulega myndskreytt.