Meðan nóttin líður
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.290 kr. |
Um bókina
Hún situr við rúm deyjandi móður. Nína, glæsileg, örugg – sannkölluð nútímakona. Að maður skyldi halda. En á meðan nóttin líður vanka spurningar, efi og gamlar sögur, gamlar myndir brjóta sér leið yfir fjöll og skriður. Sögur og myndir sem Nína reynir að bægja frá sér því:
Veruleikinn er nógur erfiður þó ekki sé verið að flækja hann í alls kyns hjátrú og hindurvitnum.
En enginn er eyland og einhlítur sjálfum sér. Samt reynist Nínu erfitt að horfast í augu við það að hún er einn liður í langri röð kynslóðanna. Vill ekki leyfa arfinum að lýsa sér leiðina.
Aldrei hefur innsæi og stílgáfa Fríðu Á. Sigurðardóttur risið hærra en í þessari afburðarsnjöllu sögu. Þetta er áleitin on miskunnarlaus skáldskapur um fólk nútímans – harm þess og eftirsjá, vit þess og vonir.
Fyrir sögu sína hlaut skáldið Íslensku bókmenntaverðlaunin 1990 og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1992.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 15 mínútur að lengd. Vilborg Halldórsdóttir les.