María Magdalena – vegastjarna eða vændiskona?
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 1.695 kr. |
María Magdalena – vegastjarna eða vændiskona?
1.695 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2008 | 1.695 kr. |
Um bókina
Sumir fyrirlíta Maríu Magdalenu, aðrir hafa á henni miklar mætur og hafa jafnvel tekið hana í dýrlingatölu. En hver var María Magdalena? Hvers vegna hvílir svo mikill leyndardómur yfir sögu hennar og hvers vegna hafa svo margir augljóslega lagt mikið á sig til að hylja sporin sem hún markaði.
Saga sögunnar um Maríu Magdalenu er á vissan hátt eins og perlufesti. Hver perla er ein saga, einn leyndardómur, eitt bréf eða eitt spor. En samhengið, festin sem perlurnar hanga á, er María Magdalena sjálf.
Í leiðangri Þórhalls Heimissonar er aðferðum leynilögreglusögunnar beitt til að leita sönnunargagna. Meðal annars er kafað í forn handrit sem ekki hafa komið út á íslensku, eins og Guðspjall Maríu, Filipusarguðspjall, Gullnu sögurnar, Nornahamarinn og fleiri.
Ýmsum spurningum er svarað þó margar nýjar vakni eins og í bestu spennusögu. En niðurstaðan er sú að María Magdalena hafi markað dýpri spor en margan grunar.