Mannlaus veröld
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 1.550 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2009 | 1.550 kr. |
Um bókina
Saga mannsins er löng en margar aðrar lífverur hafa þó verið til mun lengur, að ekki sé minnst á sjálfa jörðina. Framan af lifðum við í sæmilegri sátt við heiminn en á tiltölulega skömmum tíma hefur þetta gjörbreyst; æ fleiri tegundir jurta og dýra eru í útrýmingarhættu, sífellt meiri ógn stafar af loftslagsbreytingum og mengun frá iðnaði okkar og lífsháttum. En hvað er til ráða?
Í þessari einstöku bók veltir Alan Weismann fyrir sér hvað myndi gerast á jörðinni ef mannskepnan hyrfi en allt annað yrði kyrr á sínum stað. Hvað yrði um öll mannvirkin okkar og eiturefnin sem við höfum búið til? Hvernig myndi dýrum og gróðri farnast í mannalausri veröld? Höfum við unnið óbætanlegan skaða á lofti, hafi og jörð eða er heiminum viðbjargandi?
Mannlaus veröld er athyglisverð og sláandi hugvekja um áhrif mannsins á umhverfið sitt – og hvað heimurinn gæti grætt á að losna við okkur!
Rithöfundurinn Andri Snær Magnason ritar formála bókarinnar en þýðandi hennar er Ísak Harðarson. Bókin sat í 26 vikur samfleytt á metsölulista New York Times og var valin besta fræðirit ársins 2007 af Time Magazine.
2 umsagnir um Mannlaus veröld
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Mannlaus veröld bregður upp myndum og spurningum. Forvitnilegum, aðkallandi og fræðandi.“
Andri Snær Magnason, úr formála.
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Það er sjaldgæft að bók veki lesandann svo mjög til vitundar um náttúruna og framkalli um leið slíkan óhugnaðarhroll.“
California Literary Review