Mögnuð, hrífandi og ógleymanleg Magnea Guðmundsdóttir hefur mætt margs kyns mótlæti í lífinu, reynt ýmislegt en ekki látið neitt stöðva sig – hvorki barnamissi né annað andstreymi. Hún stendur óbuguð eftir og segir hér sögu sem á sér enga líka. Magnea fæddist í Reykjavík árið 1951, dóttir einstæðrar móður og ólst upp fyrstu árin á loftinu fyrir ofan Víkingsprent þar sem hún kynntist fólki úr ýmsum áttum, allt frá prenturum á gólfinu til Ragnars í Smára og Halldórs Laxness. Hún flutti í skrautlegt samfélag á Sogaveginum þar sem reykvísk alþýða reisti sér hús af misjöfnum efnum á sjötta áratugnum, giftist ung og eignaðist fjögur börn. En tilvera fjölskyldunnar varð öðruvísi en ætlað var. Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar einstaka sögu Magneu Guðmundsdóttur; ógleymanlega ævisögu sem lætur engan ósnortinn.