Lýðræðistilraunir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2014 | 132 | 3.520 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2014 | 132 | 3.520 kr. |
Um bókina
Í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 urðu komu fram kröfur um nýjar leiðir í pólitík og aukna hlutdeild almennings í stefnumótun . Grasrótarstarf lifnaði við og í margra augum var lýðræðisleg endurreisn nauðsynlegur hluti af því að Íslendingar gætu unnið sig út úr hruninu. Haldnir voru þjóðfundir, kosið var stjórnlagaþing og Reykjavíkurborg gerði tilraunir með þátttökufjárlög svo eitthvað sé nefnt.
Tilraunir með beint lýðræði á Íslandi vöktu athygli víða um heim, einkum vinna stjórnlagaráðs. Í þessari bók fjalla íslenskir og erlendir fræðimenn á gagnrýninn hátt um afraksturinn og þá reynslu sem hlaust af þessum nýjungum. Allir kaflahöfundar leggja áherslu á þá lærdóma sem draga megi af reynslu Íslendinga og merkingu hennar fyrir lýðræðisumræður í samtímanum.