Líftaug landsins – saga íslenskrar utanlandsverslunar 900–2010
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Pakkar | 2017 | 441 | 17.990 kr. |
Líftaug landsins – saga íslenskrar utanlandsverslunar 900–2010
17.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Pakkar | 2017 | 441 | 17.990 kr. |
Um bókina
Verslun við útlönd hefur um aldir verið burðarás í menningu og atvinnulífi landsmanna. Hún hefur mótað lífskjör og gripið inn í daglegt líf fólks, neysluhætti og stjórnmál. Í þessu riti er í fyrsta sinn sögð heildarsaga íslenskrar utanlandsverslunar og nær hún frá landnámstíð til okkar daga.
Leitast er við að segja þessa sögu á lifandi hátt svo að almennir lesendur geti haft af henni gagn og gaman. Kaflar eru fremur stuttir, textinn brotinn upp með rammagreinum og myndefni er ríkulegt.
Í ritinu er fjallað um innflutning og útflutning svo og félagslega, efnahagslega og pólitíska umgjörð utanlandsverslunar. Lesendur finna margt forvitnilegt um framandi kaupmenn og fátæka landsmenn, harðan fisk og mjúka ull, mjöl og öl, brennivín og bjór, við og vax, lýsi og smjör, freðfisk og ál, segl og sjóslys, hafnir og húkkortur, nauðsynjar og neysluvenjur, munað og hungur.
Hér segir frá ýmsu nýstárlegu efni og áleitnum spurningum í íslenskri sagnfræði, m.a. verslun Þjóðverja á 16. öld, höfðingjum sem kúguðu alþýðu á 17. öld, áhrifum iðnbyltingar á verslun Íslands, myndun íslenskrar heildsalastéttar, þátttöku Íslands í alþjóðlegu efnahagssamstarfi og áhrifum efnahagskreppunnar 2008 til 2010 á verslun, svo að eitthvað sé nefnt.
Ritið er í tveim bindum og er samið af fimm þekktum sagnfræðingum. Einn höfundanna, Halldór Bjarnason, féll frá árið 2010 og tók Helgi Skúli Kjartansson við verki hans. Ritstjóri er Sumarliði R. Ísleifsson.