Leviatan – morðingi um borð
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2005 | 242 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2005 | 242 | 990 kr. |
Um bókina
„Leviatan“ er risastórt farþegaskip sem heldur í jómfrúarferð sína frá Englandi til Indlands árið 1878. Á siglingunni er loft lævi blandið um borð því meðal farþeganna leynist morðingi sem framið hafði „glæp aldarinnar“ í París skömmu áður.
Franski lögregluforinginn Guache vinnur að lausn málsins en hann á sér keppinaut í öðrum farþega, hinum snjalla Rússa Fandorin. Ýmsir samferðamenn þeirra liggja undir grun um að hafa óhreint mjöl í pokahorninum enda eru þar á meðal meðal nokkrir býsna kynlegir kvistir.
Leviatan er margslungin og spennandi saga eftir Boris Akúnin sem nýtur mikilla vinsælda fyrir sakamálasögur sínar víða um lönd. Þetta er fimmta bókin um Fandorin ríkisráð sem kemur út á íslensku en þær fyrri eru Ríkisráðið, Krýningarhátíðin, Vetrardrottningin og Tyrknesk refskák.