Leðurjakkaveður

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 46 3.390 kr.
spinner

Leðurjakkaveður

Útgefandi : MM

3.390 kr.

Leðurjakkaveður
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2019 46 3.390 kr.
spinner

Um bókina

Vöxtur

manneskjan vex
ekki eins og tré
heldur tún

mér óx orðaforði
væntumþykja, neglur, hár
efi

sjálfsmeðvitund og örvænting
saman
mynduðu þær spegil

og spegillinn óx eins og
silfraður fiskur um hrygg

eins og múr
utan um heimsveldi
eða gaddavír um bithaga

Leðurjakkaveður er önnur ljóðabók Fríðu Ísberg, sem vakið hefur mikla athygli fyrir skrif sín, ljóðabókina Slitförin og smásagnasafnið Kláða. Hér yrkir hún um viðkvæmni, vörn og togstreituna milli sviðsetningar og sannleika á tímum einstaklingsdýrkunar.

2 umsagnir um Leðurjakkaveður

  1. Arnar


    „Það er hægt að lesa bókina ótal sinnum og alltaf komast að einhverju nýju.“
    Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið

  2. Arnar

    „Fríða ristir dýpra en mörg önnur ungskáld … Þetta eru ljóð sem við getum komið aftur til og þau munu lifa lengi.“
    Guðrún Baldvinsdóttir / Kiljan

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 2 3 4 5

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is