Laggó! – gamansögur af íslenskum sjómönnum

Útgefandi: Hólar
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 108 1.490 kr.
spinner

Laggó! – gamansögur af íslenskum sjómönnum

Útgefandi : Hólar

1.490 kr.

Laggó! - gamansögur af íslenskum sjómönnum
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 108 1.490 kr.
spinner

Um bókina

Í þessari bók er talað tæpitungulaust og jafnt tenntir sem tannlausir fara hér á kostum.

Lási kokkur „hefur vaðið fyrir ofan sig“. Ingvi Mór heldur ekki framhjá. Siggi Nobb mokar kolum í myrkri og Gísli Bergs biður um samband við sjálfan sig. Oddur spekingur hagræðir sannleikanum og Ingvi Árnason eldist hægt. Þórhallur Þorvaldsson er í sumarfríi og Guðni Ölversson borgar ekki leigubílinn.

Ása í Bæ bráðvantar tennur og Jón Berg Halldórsson hrekkir sem aldrei fyrr. Guðmundur Halldórsson tekur hótun Árna Matt illa og Sigurður Björgvinsson er í félagi sem allt drepur. Sveinn Hjörleifsson er „næstum því alveg bláedrú“ og enskan vefst ekki fyrir Reyðfirðingnum Jónasi Jónssyni á Gunnari. Skipverjar á Drangey þurfa að bíða eftir því að stilliskrúfa gangi niður af Valla Jóns og Valborg Arna Gissurardóttir, pólfari og fjallagarpur, lýsir óþarflega frjálslega aktívíteti áhafnarmeðlima skonnortunnar Hildar.

Svo fer Túlli með son til sjós og heldur um það dagbók. Sá var ekki efni í sjómann, en hins vegar rættist heldur betur úr honum á öðrum vettvangi og hefur hann skemmt okkur í mörg ár. Hver var pilturinn? Eru þá sárafáir nefndir af þeim sem við sögu koma.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning