Kyrkjari
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 464 | 3.390 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2022 | 464 | 3.390 kr. |
Um bókina
Nú er þriðja bókin í þrælspennandi ritröðinni um Juncker og Signe, komin út. Bókin er sjálfstætt framhald Meinsemdar og Kölduslóðar sem komu út 2021.
Í þetta sinn er það röð af hrottalegum morðum á konum sem vekja mikinn óhug í Danmörku. Fórnarlömbin eru skilin eftir á einstaklega niðurlægjandi hátt. Dularfullar vísanir finnast á vettvangi. Hvað er hér á ferðinni? Getur verið að raðmorðingi gangi laus?
Ofbeldisglæpadeild Kaupmannahafnarlögreglunnar, með þau Juncker og Signe í fararbroddi, fær hér stórt og erfitt verkefni í hendurnar. Juncker er hins vegar komin í eigin íbúðarholu eftir skilnaðinn og þar að auki nýbúinn í aðgerð vegna krabbameins, sem hann vill helst að sem fæstir viti um. Signe reynir að lappa upp á samband sitt við launfrekan eiginmanninn eftir framhjáhaldið, en rannsókn málsins tekur sinn toll.
Hjónin Faber og Pedersen hafa slegið í gegn í Danmörku með bókum sínum, enda eru þetta spennandi krimmar sem snerta á vanda nútíma- og alþjóðlegs samfélags, með öllu því sem tilheyrir. Bækurnar eru vel upp byggðar og þéttar, engir lausir endar. Persónusköpunin er sterk, marglaga, krydduð mannlegum breyskleika og húmor.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar