Konur sem kjósa: Aldarsaga

Útgefandi: Sögufélag
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 783 7.590 kr.
spinner

Konur sem kjósa: Aldarsaga

Útgefandi : Sögufélag

7.590 kr.

Konur sem kjósa
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2020 783 7.590 kr.
spinner

Um bókina

Konur sem kjósa fjallar um íslenska kvenkjósendur í eina öld. Titillinn vísar til kosningaréttarins en einnig til þess hvernig konur sköpuðu sér rými til að móta eigið líf og samfélagið allt. Sjónum er beint að einu kosningaári á hverjum áratug og þannig teknar ellefu sneiðmyndir af sögu kvenna undanfarin hundrað ár.

Fjallað er um kvennablöð og kvennaframboð, kvennafrí og kvennaverkföll, um baráttu kvenna fyrir hlutdeild í stjórn landsins og frelsi til að ráða menntun sinni og atvinnu, barneignum og ástarsamböndum. Við sögu koma konur úr öllum stéttum, ungar og gamlar, úr sveit og bæ, húsfreyjur sem börðust fyrir rafmagni, vatnsveitu og heilnæmri mjólk og konur sem brutu blað þegar þær urðu læknar, bílstjórar, veðurfræðingar, snyrtivöruframleiðendur og rafvirkjar. Áður ósagðar sögur kvenna njóta sín í lifandi texta og bókina prýðir fjöldi mynda af konum í leik og starfi í hundrað ár. Bókin er hönnuð af Snæfríð Þorsteins og er í stóru og glæsilegu broti.

Konur sem kjósa er stórvirki sem byggir á áralöngum rannsóknum og samvinnu fjögurra fræðimanna á sviði kvenna- og kynjasögu, stjórnmála- og menningarsögu.

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning