Konan við 1000°
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 477 | 2.490 kr. | ||
Rafbók | 2011 | 990 kr. | |||
Kilja | 2012 | 477 | 2.375 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 477 | 2.490 kr. | ||
Rafbók | 2011 | 990 kr. | |||
Kilja | 2012 | 477 | 2.375 kr. |
Um bókina
En ekki datt mér í hug, þegar ég var borin af Bob mínum á milli baranna í Höfðaborg, fékk bónorðin þrjú á skipsfjöl sunnan miðbaugs eða sat í faðmi fjölskyldunnar í stórboði á Bessastöðum, með augun límd á Marlene Dietrich, að ég ætti eftir að enda ævina alein og yfirgefin í illa upphituðum bílskúr utan í Grensásnum, koddamygluð og ótilgreidd með tölvugarm á sænginni og dauðans krumlu á öxlinni.
Herbjörg María Björnsson er áttræð og farlama og býr ein í bílskúr í austurborg Reykjavíkur. Eini félagsskapur hennar er fartölvan og gömul handsprengja sem hefur fylgt henni frá stríðsárunum. Hún leggur drög að dauða sínum og pantar tíma í líkbrennslu um leið og hún hjalar við minnisguðinn góða sem aldrei bregst. Samferðafólk, atburðir og uppátæki frá viðburðaríkri ævi rifjast upp og afhjúpa lífshlaup óviðjafnanlegs ólíkindatóls.
Hugmyndaflug og frásagnarhæfileikar Hallgríms Helgasonar njóta sín frábærlega í sögu þessarar konu sem lifað hefur tímana tvenna, setið fínustu veislur og kynnst dýpstu eymd. Af iðandi húmor, innsæi og íróníu er henni fylgt úr íslensku fásinni til stríðshrjáðrar Evrópu og enn lengra út í hinn stóra heim áður en hún snýr til baka til að segja þá sögu sem engu eirir.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2011 og til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir árið 2012.
6 umsagnir um Konan við 1000°
Nanna Rögnvaldardóttir –
„… sprúðlandi fyndin bók.“
Egill Helgason / Kiljan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„… besta bók hans síðan Höfundur Íslands kom út … Mér finnst [Herbjörg María] mjög merkileg aðalpersóna.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Húmor höfundarins sér til þess og líkt og í fyrri bókum er textinn afskaplega lifandi ; tök hans á tungumálinu eru reyndar á köflum aðdáunarverð … fjandi fín skáldsaga …“
Kristján Hrafn Guðmundsson / DV
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Engum blöðum er um að fletta að [Hallgrímur Helgason] er afburðasnjall stílisti, tök hans á málinu eru alltaf að herðast,
hann leggur fyrir lesandann hvern gullmolann á fætur öðrum, leiftrandi sagnalist hans er yndisleg …“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttatíminn
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Mögnuð skáldsaga um einhverja eftirminnilegustu persónu sem íslenskar bókmenntir hafa alið.“
Friðrika Benónýs / Fréttablaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Nánast hver einasta setning er þannig að mann langar til að leggja hana á minnið … Bókin er … svo jafngóð, að það er eiginlega lygilegt. Þetta er stór bók á marga vegu … hárbeitt samfélagsgagnrýni.“
Anna Lilja Þórisdóttir / Morgunblaðið