Jómsvíkingasaga: Íslenzk fornrit XXXIII
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 7490 | 6.490 kr. |
Jómsvíkingasaga: Íslenzk fornrit XXXIII
6.490 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 7490 | 6.490 kr. |
Um bókina
Jómsvíkinga saga er talin rituð í kringum 1200. Hún segir í upphafi frá elstu Danakonungum sem áreiðanlegar heimildir eru til um, Gormi hinum gamla, konu hans og sonum, en í síðari hluta frá samfélagi víkinga í Jómsborg við Eystrasalt. Sögunni lýkur á herferð Jómsvíkinga til Noregs þar sem þeir mæta Hákoni jarli og Eiríki syni hans í snarpri og tvísýnni orrustu í Hjörungavogi, en bíða ósigur.
Frásögnin nær hámarki í lýsingunni á aftökum Jómsvíkinga, sem sýna mikið æðruleysi og hetjuskap og ögra böðlum sínum. Sagan er fyrst og fremst skemmtisaga; höfundur lætur sér staðfræði og sannfræði í léttu rúmi liggja og sýnir konungum og öðrum höfðingjum algert virðingarleysi. Tvær drápur um bardagann í Hjörungavogi fylgja útgáfunni: Jómsvíkingadrápa eftir Bjarna Kolbeinsson Orkneyjabiskup og Búadrápa eftir Þorkel Gíslason. Þá fylgja þessu síðasta bindi konungasagna nokkrir þættir, einkum úr Flateyjarbók, sem hafa ekki áður birst í ritröðinni.
Þorleifur Hauksson og Marteinn Helgi Sigurðsson gáfu út með inngangi og skýringum. Ritstjóri: Þórður Ingi Jónsson.