Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2020 | 218 | 5.190 kr. |
Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka
5.190 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2020 | 218 | 5.190 kr. |
Um bókina
Barnabókin Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka eftir Helgu Sv. Helgadóttur og Kristínu Karlsdóttur með teikningum eftir Ásbjörn Erlingsson er stórskemmtilegt jóladagatal sem færir forna, íslenska sagnaleifð í samtímann – og í framtíðina.
Þegar sagan hefst í Reykjavík framtíðarinnar, hafa ekki verið haldin jól svo áratugum skiptir enda talin til óþarfa. Þann 1. desember árið 2100 fær Grýla sig fullsadda af ólátunum í jólasveinunum og ákveður að reka þá úr hellinum til sinna hefðbundnu starfa. Til þess þarf hún að endurvekja jólaandann úr fortíðinni en það verk er einungis á færi góðra barna … og vélmenna.
Jólapakkið – Jóladagatal fyrir forvitna krakka er fjórða bók Helgu Sv. Helgadóttur og fyrsta bók Kristínar Karlsdóttur. Áður hefur Helga gefið út barnabækurnar Dóttir veðurguðsins (2015) og Húsið á heimsenda (2016) og hefur sú síðari verið þýdd á ensku og frönsku. Þá hefur hún skrifað ásamt systur sinni, Steinunni G. Helgadóttur, sagnasveiginn Hótel Aníta Ekberg (2020).