Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Jól undir Spákonufelli
Útgefandi: Mosató
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 72 | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 72 | 3.690 kr. |
Um bókina
Jólahefðir og þjóðmenning eru rauður þráður í gegnum þessar hnyttnu og skemmtilegu sögur sem eru tilvaldar fyrir kynslóðir til að lesa saman.
Sögusvið sagnanna fjögurra er falið í titlinum, en undir hinu dulmagnaða Spákonufelli kúrir þorpið Skagaströnd. Þó að sögurnar séu ólíkar tengjast þær á ýmsa lund í tíma og rúmi og eru ýmsar persónur úr óvæntum víddum kynntar til leiks, en öll þurfa börnin í sögunum að ganga í gegnum einhverja lífsreynslu áður en jólin geta komið í allri sinni dýrð.
Þetta er hugljúf og smellin bók fyrir alla þá sem eru að leita að hinum sanna jólaanda.
2 umsagnir um Jól undir Spákonufelli
Elín Pálsdóttir –
“Í Jólum undir Spákonufjalli koma saman lifandi sögusvið, mikil frásagnargleði og sannur jólaandi! Yndisleg aðventubók fyrir alla fjölskylduna.“
Arndís Þórarinsdóttir
Elín Pálsdóttir –
“Ástrós tekst að skapa ljóslifandi og gullfallegan töfraheim með piparkökum, snjókornum og mandarínuilmi. Ýmsir þjóðlegir vættir dúkka upp en enginn fær að hitta þau nema auðvitað krakkarnir, því fullorðnir skilja ekki allt. En bókin hentar öllum aldri, krakkarnir sogast inn í galdraveröldina og þeir sem eldri eru með þeim. Sagan er í senn næm, ljúf, óvænt og sprenghlægileg og það er erfitt að komast hjá því að tárast á fallegustu stöðunum en þeir eru margir. Fyrir krakka á öllum aldri sem hlakka til jólanna en líka þá sem hafa enn ekki fundið andann hellast yfir sig er Jól undir Spákonufelli rétta bókin.”
Júlía Margrét Einarsdóttir