Játningar mjólkurfernuskálds

Útgefandi: MM
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 240 3.590 kr.
spinner
Rafbók 2020 990 kr.
spinner

Játningar mjólkurfernuskálds

Útgefandi : MM

990 kr.3.590 kr.

Játningar mjólkurfernuskálds
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2011 240 3.590 kr.
spinner
Rafbók 2020 990 kr.
spinner

Um bókina

Vika 1 í nýja skólanum
• Komast í slæman félagsskap. Smámál – allir eru hræddir við dópsala eins og mig.
• Alls ekki fara í forprófið fyrir spurningakeppni grunnskólanna.
• Skoða kennslumyndbönd í reykingum.
• Alls, alls ekki láta undan tilraunum sætasta stráksins í skólanum til samskipta. Þótt hann sé með sítt hár.
• Læra að nota fljótandi augnmálningu. Muna: Kaupa nóg af eyrnapinnum og hreinsivökva.
• Gera þetta allt án þess að steypast í félagslega glötun, lækka í einkunnum eða lenda í vandræðum heima …
Játningar mjólkurfernuskálds er drepfyndin saga um fermingarstúlku á villigötum, bleikklæddar kennarasleikjur og svarthærða gothara, sæta spurningakeppnisnörda – og allar spurningarnar sem er svo erfitt að svara.
Játningar mjólkurfernuskálds er fyrsta skáldsaga Arndísar Þórarinsdóttur.
 
httpv://www.youtube.com/watch?v=vA1XpWwk68o
– oOo –
httpv://www.youtube.com/watch?v=qJOuqo-L3Kk
„Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar og vonandi sú fyrsta af mörgum. Bókin er stórskemmtileg, fyndin og viðburðarík, og sögð af mikilli frásagnargleði. Hún er með betri unglingabókum sem ég hef lesið.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
 
„Þrælskemmtileg og spennandi unglingasaga.“
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir / Fréttablaðið
 
„Arndís skrifar skemmtilegan og lipran texta sem rennur vel … Sagan er líka áhrifarík og heldur manni vel við efnið. … skemmtileg lesning fyrir alla unglinga og ætti að vera hvetjandi fyrir hvern og einn að berjast fyrir því að fá að vera hann sjálfur, sem og að sýna öðru fólki umburðarlyndi þó það sé ekki eins og maður sjálfur.
Birta Björnsdóttir / Morgunblaðið
 
„Arndís Þórarinsdóttir á hrós skilið fyrir Játningar mjólkurfernuskálds. … Í sögunni er allt sem þarf til að gera góða unglingasögu, ást, svik, lygar og svo framvegis en gamansamur stíllinn og skemmtilegt líkingamál gerir söguna að því sem hún er, frásögn af stelpu í leit að sjálfri sér, góðri skemmtun og umhugsunarverðri gagnrýni á aðstæður barna og unglinga bæði hér á Íslandi og úti í hinum stóra heimi.“
María Bjarkadóttir / Bókmenntavefurinn

Tengdar bækur

Products not found

Opnunartímar á Fiskislóð

Virkir dagar 10-18
Laugardagar 11-17
Sunnudagar 12-16

 

Sími í verslun á Fiskislóð 39: 575 5636

Sími á skrifstofu á Bræðraborgarstíg: 575 5600

Fylgstu með á facebook!

2021 © Forlagið | Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík | Sími 575 5600 | forlagid@forlagid.is | www.forlagid.is

INNskráning

Nýskráning

nýskráning