Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Íslenskir kommúnistar
Útgefandi: BF
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 623 | 1.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 623 | 1.690 kr. |
Um bókina
Í þessari sérlega fróðlegu og vel skrifuðu bók er rakin saga íslenskra kommúnista í máli og myndum frá því að Brynjólfur Bjarnason tók þátt í götuóeirðum í Kaupmannahöfn haustið 1918 og fram til þess að þau Margrét Frímannsdóttir og Svavar Gestsson þáðu boðsferð til kommúnistaflokks Kúbu haustið 1998. Óslitinn þráður var frá fyrstu aðdáendum kommúnismans til hinna síðustu. Nú hafa allar myndir af Stalín verið teknar niður í betri stofum á Íslandi en eftir stendur, að hreyfing íslenskra kommúnista náði hér meiri áhrifum en víðast annars staðar í lýðræðisríkjum, ekki aðeins í stjórnmálum heldur einnig í verkalýðshreyfingu og menningarlífi.
Bókafélagið gefur út.