Íslenska kraftaverkið: á bak við tjöldin
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 224 | 1.690 kr. |
Íslenska kraftaverkið: á bak við tjöldin
1.690 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 224 | 1.690 kr. |
Um bókina
Íslenska landsliðið vakti heimsathygli með frammistöðu sinni á EM í Frakklandi árið 2016. Og ekki minnkaði undrunin þegar liðið endaði á toppnum í ógnarsterkum riðli í forkeppni HM í Rússlandi. Hvernig var þetta hægt? Með leikmenn sem flestir voru í lítt þekktum liðum og þjálfarinn tannlæknir í hlutastarfi!
Í þessari áhugaverðu og skemmtilegu bók gefst einstakt tækifæri til að skyggnast baksviðs hjá íslenska landsliðinu, og kynnast „strákunum okkar“ í sigrum og ósigrum, gleði þeirra og sorgum, hjátrú og hefðum, fá innsýn í líf atvinnumannsins – og aðferðir þjálfaranna Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar. Auk þess er hér að finna ljósmyndir að tjaldabaki sem hvergi hafa birst áður.
Þorgrímur Þráinsson á að baki langan knattspyrnuferil en hefur líka verið starfsmaður landsliðsins í meira en áratug. Hann gjörþekkir strákana í liðinu, á trúnað þeirra og segir söguna á bak við ævintýrið af innsæi, húmor og leiftrandi sagnagleði.”